Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur. Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn virðist í sjónmáli.
Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir Grænlands. Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólanna í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir að í honum sé skýr takmörkun á fullveldi konungríkisins Danmerkur. Mat umsjónarmanns Heimsgluggans var að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar og hótanir hefði fjallið tekið jóðsótt og fæðst mús.
Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“. Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálastöðuna í Svíþjóð. Þar er ljóst að hægri stjórn Ulfs Kristersson hefur misst meirihluta sinn og að Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna, reynir að mynda stjórn. Það verður ekki auðvelt því flokkarnir sem hún þarf að fylkja að baki sér eru ósammála um mjög margt.
Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana Harald og Hákon Noregskonunga og þátttöku konungborinna í þjóðmálaumræðu og í lokin var talað um hörkuspennandi kosningabaráttu í Svíþjóð.
Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur er svo súrefnislaus að hann er nánast lífvana, fiskar, krabbar og aðrar lífverur í hafinu hafa hreinlega drepist eða flúið. Þá var rætt um fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretlands. Í lokin var greint frá stöðunni í kosningabaráttunni í Svíþjóð þar sem spenna hefur aukist eftir að bilið á milli stjórnar og stjórnarandstöðu minnkaði mikið.
Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Baldur og Vilborg verða í pallborði og ræða þessi mál þar. Þau voru sammála um að Íslendingar komist ekki hjá því að auka útgjöld til varnarmála. Bogi ræddi einnig um vandræði danska flotans við Grænland þar sem hætt var við eftirlitsferð sem Hvidbjørnen átti að fara í til Grænlands. Ástæðan er að ekki tókst að manna skipið.
Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldarinnar vin sinn. Þetta bætist ofan á misheppnaða stefnu í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu, fjandskap við bandamenn, hótanir um yfirtöku Grænlands og allt annað. Trump kvaðst við upphaf seinna kjörtímabils síns ætla að verða boðberi friðar og krafðist þess að fá friðarverðlaun Nóbels. Fréttaskýrandi BBC segir að arfleifð hans gæti orðið eilífðarstríð við Íran. Í Svíþjóð er allt útlit fyrir ósigur stjórnar hægristjórnar Ulfs Kristerssons í kosningum 13. september. Tíu prósentustiga munur er á fylgi stjórnarinnar og fylgi mið- og vinstriflokka í stjórnarandstöðunni. Fréttaskýrendur segja að engri ríkisstjórn hafi tekist að ná upp svo miklum mun á svona skömmum tíma.
Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram en enginn stóru flokkanna býður sig fram því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Því hefur helsti keppinauturinn verið Count Binface, Fötufés greifi. Hann kemur ætíð fram í búningi með ruslatunnulíki á höfðinu. Count Binface hefur verið nefndur Fötufés, Ruslgrímur, Tunnuhaus og Tunnufés í íslenskum fjölmiðlum. Við heyrðum í Heimsglugganum nokkur brot úr viðtali við hann sem Alastair Campbell og Rory Stewart tóku við hann í þætti sínum The rest is politics.
„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í þinginu í gær og lét andstæðinga Verkamannaflokksins fá það óþvegið. Í lokin var stuttlega minnst bresk-kanadíska söngvarans David Clayton-Thomas sem lést í síðustu viku. Hann öðlaðist heimsfrægð með hljómsveitinni Blood, Sweat & Tears. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda í kringum 1970. Við heyrðum Clayton-Thomas syngja You've Made Me So Very Happy.
Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vinstri sveiflu innan Demókrataflokksins og óvinsældir Trumps forseta. Sigríður Rut segir mögulegt að vinsældir forsetans geti aukist á ný því að mörgu leyti megi líkja fylgjendum Trumps við sértrúarsöfnuð.


