60 |Stormasamar vikur í Bandaríkjunum og réttað yfir mafíósum á Ítalíu
Í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar Heimskviða er atburðarrás síðustu vikna í Bandaríkjunum í forgrunni. Símtalið í Georgíuríki, árásin á þinghúsið og nýr Bandaríkjaforseti. Já, vika, eða nokkrar, eru sannarlega langur tími í pólitík.
Þá er einnig fjallað um ein umfangsmestu réttarhöldum í sögu Ítalíu. Það þarf að fara áratugi aftur í tímann til að finna hliðstæðu í umfangi. Sakborningarnir eru á fjórða hundruð og vitnin hátt í þúsund talsins. Og þau sem verma munu sakamannabekkina eru öll talin tengjast með einum eða öðrum hætti mafíunni.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
Fleiri þættir af Heimskviður
- 265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?3. október 2026

- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026