246 - Trainspotting og óður til MTV
Kvikmyndin Trainspotting er þrítug um þessar mundir. Hún kom fyrst í kvikmyndahús 23. febrúar 1996 og hefur síðan öðlast sess í kvikmyndasögunni og er að mörgum talin meðal bestu kvikmynda tíunda áratugarins. Myndin fjallar um vinahóp í Edinborg í Skotlandi sem er djúpt sokkinn í heróínneyslu. En Trainspotting er miklu meira en en saga af ógæfusömum vinum, eins og Dagný Hulda Erlendsdóttir komst að þegar hún spjallaði við Kevin Williamson. Hann var sá sem fyrstur gaf Trainspotting út, þá sem smásögur í menningartímariti. Hann segir að bókin og kvikmyndin hafi verið mikilvæg vopn í menningarstríði verkalýðsins í Skotlandi gegn elítunni í Bretlandi á tíunda áratugnum. Í því stríði hafi verkalýðurinn haft betur.
Svo fjöllum við um sögu sjónvarpsstöðvarinnar MTV. Það bárust fregnir af því fyrir áramót að stöðin góðkunna væri að leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir að hún var stofnuð árið 1981. Við ætlum að skoða sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn.
Fleiri þættir af Heimskviður
- 265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?3. október 2026

- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026