257 - Staðan í Venesúela og leikvangar fyrir kvennknattspyrnu
Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum málum, eins og hótunum Trumps um að taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraela á Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt. Í Heimskviðum í dag ætlum við að reyna að glöggva okkur á því hvort eitthvað hafi breyst í Venesúela eftir að Maduro var steypt af stóli. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
Enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion tilkynnti nýlega um byggingu nýs leikvangs sem verður eingöngu fyrir kvennafótbolta. Þetta yrði fyrsti völlur sinnar tegundar í Evrópu en sá fyrsti í heiminum var tekinn í notkun í Kansas City í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. En hvað gerir þessa velli vænlegri fyrir kvennafótbolta og af hverju er ástæða til hafa slíka velli? Hallgrímur Indriðason, sem hefur horft á ófáa fótboltaleikina um ævina, kannar þetta.
Fleiri þættir af Heimskviður
- 265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?3. október 2026

- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026