259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood
Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir uppboðsstríð við streymisveituna Netflix tókst Paramount að tryggja sér Warner Bros. á 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna. Yfirvöld þurfa að samþykkja samrunann en ef af honum verður verða aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Leikarar, framleiðendur, leikstjórar og aðrir hafa áhyggjur af færri tækifærum gangi samruninn í gegn, störfum fækki, kostnaður hækki og að úrval fyrir neytendur verði minna. Sigurjón Sighvatsson framleiðandi sem hefur unnið í Hollywood til áratuga segir að samruninn hafi verið óumflýjanlegur.
Fleiri þættir af Heimskviður
- 265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?3. október 2026

- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026