Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla
World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum.
Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Hallgrímir Indriðason vann þessa umfjöllun í febrúar og ræddi við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún sagði umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.
Fleiri þættir af Heimskviður
- 265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?3. október 2026

- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026
- 264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um26. september 2026