Síðasta lag fyrir myrkur - Uppruni (Saša Stanišić)
Síðasta lag fyrir myrkur er... Uppruni.
Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með.
Saša Stanišić, er fæddur í fyrrum Júgoslavíu 1978. Höfundur lýsir bókinni svo í eigin orðum:
„Uppruni er bók um staðina þar sem ég á heima, þá sem lifa í minni mínu og þá sem ég hef skáldað. Þetta er bók um tungumál, tunglsljós, æsku og fjölmörg sumur. Sumarið þar sem afi minn tróð ömmu svo um tær í dansi að litlu munaði að ég hefði aldrei fæðst. Sumarið þar sem ég næstum drukknaði. Sumarið sem Angela Merkel opnaði landamærin og líktist sumrinu þegar ég flúði um mörg landamæri til Þýskalands.
Uppruni er kveðja til ömmu með minnisglöpin. Á meðan ég safna minningum mínum er hún að glata sínum.“
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting5. febrúar 2024
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot12. desember 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð27. september 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari26. júní 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur -Blá12. maí 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað5. maí 2023






