Síðasta lag fyrir myrkur - Hundagerðið (e. Sofi Oksanen)
Síðasta lag fyrir myrkur er... Hundagerðið.
Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með.
Í kvöld tökum við fyrir Hundagerðið eftir Sofi Oksanen, en þar tvinnast líf allslauss innflytjanda í Helsinki saman við sögu Úkraínu eftir fall Sovétríkjanna; í umróti sem fylgdi sjálfstæði landsins reyndi hver að bjarga sjálfum sér og þegar spillingin heima fyrir mætti vestrænni græðgi urðu fátækar stúlkur á milli. Í valdabaráttu auðugra fjölskyldna varð líf þeirra einskis vert, frjósemin það eina sem þær höfðu að selja.
Sofi Oksanen er einstaklega glögg á mannlega tilveru og í þessari áhrifamiklu og spennandi sögu er stungið á viðkvæmum kýlum samfélagsins í beittum texta og vel byggðri frásögn. Hundagerðið er fimmta bók Sofi Oksanen sem kemur út á íslensku.
Erla E. Völudóttir þýddi úr finnsku.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting5. febrúar 2024
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot12. desember 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð27. september 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari26. júní 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur -Blá12. maí 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað5. maí 2023






