Ræmurýmið - Office Space
Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar.
Office Space er óður til hinna vinnandi barna áttunda áratugarins og kolsvört kómedía um dáleiðslu, fyrirtækjakúltúr, ömurlega yfirmenn, síbilandi prentara, sérfræðiþekkingarlausa „sérfræðinga“ og mikilvægi rauðra heftara.
Peter, Samir og Michael vinna á andlega dauðri skrifstofu hugbúnaðarfyrirtækis, klæðast hvítum skyrtum og þjást. Peter, að ráði unnustu sinnar, heimsækir dávald í tilraun til að ná taki á kvíða og lífsleiða, en það er upphaf atburðarásar sem endar með ósköpum, sér í lagi fyrir prentara.
Meðal leikara eru Ron Livingston, Jennifer Aniston, Stephen Root og Gary Cole. Leikstóri og höfundur er Mike Judge.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting5. febrúar 2024
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot12. desember 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð27. september 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari26. júní 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur -Blá12. maí 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað5. maí 2023






