Ræmurýmið - Die Hard - Jólamynd eða Bruce Willis mynd?
Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar.
Er Die Hard Jólamynd? Skiptar skoðanir eru um þessa hjartnæmu sögu um mann sem leggur allr í sölurnar til að sameina fjölskylduna sína á jólum, - með tilheyrandi sprengingum, vélbyssunotkun, og falli frá háum stöðum.
Fyrir viðburðinn er tilvalið að hlusta á Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar, en Gunhildur Ægisdóttir tekur stutta krufningu á þessari klassík sem hóf kvikmyndaseríuna um John McCain, breytti Bruce Willis úr hjartaknúsara í harðjaxl, og opinberaði guðsgjöfina sem er Alan Rickman fyrir heiminum.
"If This Is Their Idea Of Christmas, I Gotta Be Here For New Year's."
Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting5. febrúar 2024
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot12. desember 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð27. september 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari26. júní 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur -Blá12. maí 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað5. maí 2023






