Ræmurýmið - Svarti skafrenningurinn

Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar. 
Mynd októbermánaðar er engin önnur en Svarti skafrenningurinn sem má með sanni kalla fyrstu íslensku ofurhetjumyndina. 
Ungi sauðfjárbóndinn Kormákur öðlast ofurkrafta fyrir tilstilli lýsisfulls hrúts, - sem betur fer! Reykjavík er föst í klóm viðurstyggilega glæpahringja og ofurþrjóta sem svífast einskis, og lögreglan stendur á gati. Aðeins einn maður getur staðið gegn yfirvofandi heimsyfirráðum illskunnar.
 
Hann er virðing. Hann er réttlæti. Hann er…
 
Svarti Skafrenningurinn.

Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar

Úr hlaðvarpinu

Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar

Bókasafn Hafnarfjarðar

Allir þættir

Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar