Þrýstingurinn - 3. þáttur - Dagbók- serían e. Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur
„Mikið afskaplega eru leiðinlegar svona sérhannaðar bókmenntir fyrir unglinga.“
Eva - Stella í Orlofi (1986)
Hver var ekki-uppáhaldsbókin þín? Þrír nördar og bókabéusar, ekki lengur unglingar, en voru það einu sinni, fara yfir titla æsku sinnar (og eldri) og pæla hvað í ósköpunum gekk eiginlega á í unglingabókmenntum. En hver þarf ekki smá Þorgrím í lífið svona endrum og eins?
Dagbókarserían eftir Kolbrúnu Aðalsteins kom út á árunum 1989 til 1991 og segir frá Kötu, sem er heimsins bestlaunaði unglingur tíunda áratugarins og framtíðarstjarna allra Rauðu-seríubóka. Spænskir fótboltamenn, öfundsjúk tálkvendi, Kendúkkupabbar, furðulega kynferðislegir hittingar á baðherbergjum, vodki í appelsínum - og auðvitað Mözdur - koma við sögu í seríu sem veit ekki alveg hvað hún á að vera. En við vitum allavega að til að stunda kynlíf er eins gott að vera með mikið af kertum...
Fleiri þættir af Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 8. þáttur :Örvænting5. febrúar 2024
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 7. þáttur : Elsku Margot12. desember 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 6. þáttur : Hetjudáð27. september 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur - Þormóður Torfason: Dauðamaður og dáður sagnaritari26. júní 2023
- Síðasta lag fyrir myrkur -Blá12. maí 2023
- 1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 5. þáttur : Augað5. maí 2023






