Raddir margbreytileikans – „Vofa“ móðurinnar mótar karlmennskuvitund ungra flóttamanna
Viðmælandi þessa þáttar er Árdís Kristín Ingvars, félags- og mannfræðingur, sem er aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands. Árdís fæddist í Reykjavík árið 1970. Hún lauk BA prófi árið 2010 í mannfræði við Háskóla Íslands og diplómu í hnattrænum tengslum, fólksflutningum og fjölmenningarfræðum árið 2013, frá HÍ. Árdís lauk MA námi í mannfræði við HÍ ári seinna. Árið 2019 lauk Árdís doktorsprófi í félagsfræði frá HÍ.
Árdís hefur einkum rannsakað málefni flóttafólks, en einnig stöðu fatlaðra og atvinnuþátttöku þeirra á Íslandi. Ein helsta áhersla Árdísar hefur verið staða ungra karlkyns innflytjenda og flóttamanna, bæði hinsegin og gagnkynhneigðra, og mótun kyngervis þeirra í nýjum og framandi félagslegum og menningarlegum aðstæðum, og skörun þessara þátta við neikvætt pólitískt andrúmsloft gagnvart flóttafólki og vaxandi þjóðernishyggju. Þessir þættir hafa tengst aukinni öryggisvæðingu Evrópu þar sem ímynd karla frá Miðausturlöndum er í auknum mæli glæpavædd. Út frá þessum þáttum hafa rannsóknir Árdísar einkum fókuserað á hvernig ungum körlum á flótta hefur gengið að fóta sig í breyttum aðstæðum í framandi samfélagi sem virkir þátttakendur.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


