Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildin

PólitíkFréttir

Í hlaðvarpi Heimildarinnar má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.

Eitt og annað: Comté eða ekki Comté

Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta, nánar tiltekið eru reglurnar 170 talsins. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir fyrir gæði. En stundum koma upp vandamál sem erfitt er að leysa, því hafa framleiðendur Comté ostanna fengið að kynnast að undanförnu.

Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1

Þennan þátt af Þjóðháttum flytja Kristinn Schram og Auður Viðarsdóttir ykkur beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, tekinn upp í lifandi flutningi í Salnum í Kópavogi. Við kynnumst hljóðritasafni Stofnunar Árna Magnússonar með Rósu Þorsteinsdóttur, fáum innsýn í dagskrá hátíðarinnar og spjöllum við Atla Frey Hjaltason um þjóðdansa, tónlist og þjóðlistir. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem við tökum púlsinn á stærstu þjóðlistahátíð landsins.

Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?

Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niðurskurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennskunni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangursskipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkjaforseta.

Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi

Í tengslum við yfirlýsingar og áhuga Donald Trump um yfirráð og kaup á Grænlandi hefur lítið verið talað um viðskilnað bandaríska hersins á fyrrverandi herstöðvum í landinu. Í þeim efnum er síður en svo allt í sómanum.

Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina

Ungum Dönum sem hjóla daglega í skólann eða til vinnu hefur fækkað talsvert á síðustu árum. Í Danmörku fjölgar bílum ár frá ári og á heimilum þar sem áður var til einn bíll eru þeir nú iðulega tveir, jafnvel þrír.

Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum

Þótt meirihluti Grænlendinga vilji ekkert með Bandaríkjamenn hafa gegnir öðru máli um íbúa Narsarsuaq. Þeir binda miklar vonir við að bandaríski herinn komi þar upp herstöð.

Eitt og annað: Glansinn hverfur af stígvélunum

Svartar bjarnarskinnshúfur, rauðir jakkar, bláar buxur, byssustingur og gljáandi stígvél. Þetta er hátíðarbúningur lífvarða dönsku hirðarinnar. Samkvæmt reglum um aðbúnað á vinnustöðum verður nú slakað á kröfum um háglansandi skófatnað varðanna.

Eitt og annað: 50 gráðu frost, 12 menn og 100 hundar

Sirius deild danska hersins er ekki daglega í fréttum en gegnir mikilvægu hlutverki. Þessi fámenna deild á sér langa sögu en nafnið Sirius (Hundastjarnan) er ekki tilviljun. Sirius deildin hefur eftirlit með stærsta þjóðgarði heims.

Eitt og annað: Þýski bílabransinn í bobba

Flestir stærstu bílaframleiðendur í Þýskalandi eiga í miklum erfiðleikum. Starfsfólki í þýskum bílaverksmiðjum fækkaði um 114 þúsund á síðasta ári og útlitið framundan er ekki bjart. Kínverjar hafa á örfáum árum „reykspólað“ inn á bílamarkaðinn.

Eitt og annað: Kuggurinn: Á meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku

Þegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld. Flakið er talið meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku.

Þér gæti líka líkað...