Raddir margbreytileikans – Mannfræði og kynjafræði: Tvískipt gleraugu
Gestur vikunnar er Hjálmar Gunnar Sigmarsson. Hjálmar er fæddur 1970 í Reykjavík en ólst upp að miklu leyti í Hong Kong og Lúxemborg en hefur auk þess búið í San Fransisco, Miami, Sarajevó, Utrecht, stundað nám í Budapest og Granada og unnið fyrir UNIFEM í Bosníu.
Hjálmar lauk BA gráðu í heimspeki við Háskóla Íslands áður en hann fór í meistaranám í mannfræði við sama skóla. Í mannfræðinámi sínu skrifaði hann um vinnusemi Íslendinga undir leiðsögn dr. Unnar Dísar Skaptadóttur. Seinna kláraði hann aðra meistaragráðu en þá í kynjafræði við CEU í Búdapest og University of Granada. Í seinni tíð hefur hann blandað saman mannfræði og kynjafræði í rannsóknum sínum og störfum, meðal annars á Jafnréttisstofu og í UNIFEM.
Við ræddum við Hjálmar um æsku hans í Hong Kong, hvernig hann rataði inn í mannfræðina og hvernig mannfræði, aktívismi og femínismi koma saman í vinnu hans, en Hjálmar vinnur nú við ráðgjöf og fræðslu í Stígamót.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


