Tæknivarpið – Buzz hleður tóma síma á djamminu
AtNorth lýsir yfir vilja til að byggja upp gagnaver rétt fyrir utan Akureyri. NFT grúppa hakkar Bjarta Framtíð á Twitter og dælir út auglýsingum. Buzz býður upp á að kveða burt hleðslukvíða með leigu-rafhlöðum fyrir snjallsíma á vel völdum börum. Elon Musk kaupir stóran hlut í Twitter og hvað þýðir það? Twitter íhugar að bjóða upp á edit-takka. Það kemur út nýr Monkey Island tölvuleikur í ár, en sá síðasti kom út árið 2011. Netflix bætir við nýjum flokki eftir hugmynd Pete Davidson: short ass movies. Flokkurinn er með kvikmyndir undir 90 mínútum til að heilla yngri kynslóðir 💀 Atli fer svo aftur yfir næstu kaup, sem hafa ekki enn átt sér stað.
Þessi þáttur er í boði Macland.
Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Mosi.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


