Tæknivarpið – Break frá Fractal 5 og jólagjafir
Fractal 5 gaf út sitt fyrsta app á Slush nýsköpunarhátíðinni í vikunni: Break. Break er samfélagsmiðill sem ætlar að skipuleggja tækisfærishittinga fyrir fólk. Macland opnar nýja verslun í Kringlunni í dag(3.des)! Við rennum yfir jólabækling Elko og rekum augum í fótanuddtækið sem virðist aldrei ætla deyja. Nýja ríkisstjórnin ætlar að opna sína eigin streymisveitu til að miðla íslensku efni geymt hjá Kvikmyndamiðstöðinni. Er það sniðugt eða á bara að upphala þessu á YouTube? SpaceX er víst á leiðinni á hausinn samkvæmt Elon Musk sjálfum, nema allt starfsfólkið vinni langar vaktir um helgar til að bjarga því. Tesla kynnir fjórhjól fyrir börn sem heitir auðvitað Cyberquad. Meðstofnandi og forstjóri Twitter stígur til hliðar og hleypir nýjum að. Ætli það sé framtíð fyrir Twitter án Trump? Apple virðist hafa dregið úr framleiðslu á iPhone þetta árið en ekki er vitað hvort það sé vegna eftirspurnar eða framleiðslugetu.
Þessi þáttur er í boði Elko og Macland.
Stjórnendur eru: Atli Stefán, Elmar Torfason og Daníel Ingólfsson
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


