Tæknivarpið – Steam Deck seinkar og Pixel 6 Pro er lentur
Mannvirkjaskrá kemst á netið og verður stafræn. Sýn fer í færsluhirðingu eða posaleigu. Húsasmiðjan bjó til app og er með einhverja útgáfu af „skannað & skundað“. Steam Deck leikjatölvunni hefur verið seinkað sem kemur ekkert sérlega á óvart. Microsoft býr til Chromebook „killer“ til að komast inn í skólastofurnar í Bandaríkjunum. Næstu örgjörvar Apple halda áfram að leka. Elmar fjallar um sín fyrstu viðbrögð við Pixel 6 Pro símanum.
Þessi þáttur er í boði Elko, Macland, og Bruggstofunnar + Honkítonk BBQ. Hlustendur Tæknivarpsins eru með 10% afslátt af drykkjum hjá Bruggstofunni.
Stjórnendur eru: Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


