Þjóðhættir – Hver kynslóð verður að uppgötva sagnaarfinn: bókmenntir, galdra og varúlfa
Aðalheiður Guðmundsdóttir er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Áður var Aðalheiður dósent við þjóðfræðideild HÍ og kenndi meðal annars kúrsa um ævintýri, galdra og þjóðsagnafræði.
Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Aðalheiði um rannsóknir hennar á miðaldabókmenntum og fornaldasögum. Aðalheiður hefur rannsakað hvernig fornaldasagnahefðin birtist í Evrópu og ákveðnar sögur eða sögubrot sjást til dæmis á mynd- og rúnasteinum, í kvæðum, kirkjulist, sagnadönsum og veggteppum. Þessar sögur, sem byggja á sameiginlegri sagnahefð, verða svo að bókmenntum hér á Íslandi.
Aðalheiður segir einnig frá því hvernig hún hefur rannsakað þjóðfræðiefni í miðaldabókmenntum, meðal annars minnið um vondu stjúpuna, galdra og álög. Þá segir hún frá varúlfum, eða hamskiptaminninu sem er sívinsælt jafnt meðal lesenda og fræðifólks. Í íslenskum miðaldabókmenntum má finna þó nokkrar sögur af varúlfum, sem eru yfirleitt karlkyns, og segja þá frá dýrinu innra með okkur sem brýst út við sérstakar aðstæður.
Nú á næstunni eru væntanlegar þrjár bækur sem Aðalheiður hefur unnið að. Þetta eru tvö fyrstu bindin í ritröðinni Arfur aldanna, þar sem fjallað er um fornaldasögurnar. Að auki er væntanlegt ritið Íslenskar bókmenntir: Saga og samhengi. Aðalheiður bendir á að mikilvægt sé að hampa ekki ákveðnum þáttum bókmenntasögunnar á kostnað annarra og að hver kynslóð verði að fá að uppgötva arfinn upp á eigin spýtur. Aðalheiður ræðir einnig hvernig dægurmenning og kvikmyndir sækja innblástur sagnaarfinn og miðaldabókmenntir.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


