Raddir margbreytileikans – 11. þáttur: „Leið inn í heim iðandi ofurlífveru“
Í þessum þætti er rætt við Sigurjón Baldur Hafsteinsson, mannfræðing og safnafræðing um rannsókn hans á sjónvarpstöð frumbyggja í Kanada, pælingar varðandi dauða og sorg, og um undralífheima torfhúsa.
Sigurjón Baldur Hafsteinsson lauk BA prófi mannfræði frá HÍ, MA gráðu í mannfræði frá Temple háskólanum í Fíladelfíuborg í USA, og doktorsprófi í mannfræði frá sömu stofnun. Megin viðfangsefni Sigurjóns Baldurs eru sjónrænir miðlar, dauði og sorg, og safnastarf.
Raddir margbreytileikans er mannfræðihlaðvarp þar sem rætt verður við íslenska mannfræðinga um það sem þeir eru að rannsaka. Einnig verður rætt við erlenda fræðimenn þegar færi gefst. Umsjónarfólk hlaðvarpsins eru Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Kristján Þór Sigurðsson og Sandra Smáradóttir.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


