Radíó Efling – Labbað í loftið
Í nýjasta þætti Radíó Eflingar ræðir Þórunn Hafstað við Eðvald Karl Eðvalds, félagsmann Eflingar til margra ára. Kalli, eins og hann er alltaf kallaður, fékk sína fyrstu vinnu 11 ára, en stendur nú á tímamótum. Hann er nýorðinn 67 ára og er að hætta að vinna. Kalli hefur komið sér upp einum fullkomnasta flughermi landsins heima hjá sér og í þættinum býður hann hlustendum á flug meðan hann ræðir um starfsferilinn í steypunni, frelsið í háloftunum og hvernig hann sjái fyrir sér að verja þeim tíma sem fylgir starfslokunum.
Umsjón: Þórunn Hafstað
Viðmælandi: Eðvald Karl Eðvalds
Tónlist og hljóð: www.freesound.com
Funky Moon eftir Stefan Kartenberg (CC BY 3.0), Retro piano loop eftir Setuniman (CC BY-NC 3.0), DaveJf (CC0 1.0), Kev_durr (CC BY 3.0), Navadaux (CC0 1.0), Setuniman (CC BY-NC 3.0).
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


