Tæknivarpið – Uppfærslur hjá Apple á öllum stýrikerfum
Apple heldur sína árlegu tækniráðstefnu í vikunni og byrjaði hana á mánudaginn með upptekinni lykilræðu þar sem starfsfólk rennur yfir það nýjasta í stýrikerfum Apple. Ráðstefnan var sneisafull af hugbúnaðaruppfærslum en ekkert bólaði á nýjum Macbook Pro tölvum sem mörg áttu von á. Einnig var lítið að frétta af öflugum tólum fyrir nýjar iPad Pro tölvur.
Stjórnendur eru Andri Valur og Atli Stefán. Við fáum til okkar góðan gest, hann Sigurð Stefán Flygenring frá Macland til að fara yfir þetta með okkur.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


