Tæknivarpið – Google I/O, Pixel 6 lekar og hágæða tónlist
Google hélt loksins I/O tækniráðstefnuna sína og streymdi aðalkynningu í beinni í vikunni. Þar var farið um víðan völl enda lausna- og vöruframboð Google orðið víðfemt. Þar var fjallað um framtíðina í Android, á fjarfundum og í persónuvernd á netinu.
Pixel 6 lekarnir eru byrjaðir og Atli er spenntur fyrir nýrri hönnun. Á sama tíma grætur eini Pixel-notandinn í hópnum myndavélrassinn á bakinu.
Apple þurfti að pína sig í að kynna nýja þjónustu fyrr en áætlað útaf lekum og hefur afhjúpað taplausa tónlist í Apple music. Það þýðir að tónlistin er ekkert þjöppuð og er í bestu mögulegum gæðum.
Nýr iMac hefur stigið út úr fjölmiðlabanni og YouTube er yfirfullt af umfjöllun. Við rennum yfir það helsta, en við höfum ekki enn fengið okkar eintak frá Macland.
Stjórnendur í þætti 278 eru Atli Stefán, Andri Valur, Elmar Torfason og Mosi.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


