Saga Japans – 33. þáttur: Hoichi hinn eyrnalausi og fall Taira
Í þessum þætti er fjallað um hið stutta tímabil þegar Fukuhara, betur þekkt sem upprunastaður Kobe nautakjötsins, var höfuðborg Japans í aðeins eitt ár. Þegar Kiyomori tekst að fá upp á móti sér voldugustu hof og klaustur Japans stefnir hann öllum afkomendum sínum, og arfleið sinni í hættu – hinum átta ára Antoku keisara þar með töldum.
Í Heike-sögu, kvæðabálk frá þrettándu öld, er fall ættar hans rakið til skapgerðarbresta í þessum hrokafulla stríðsmanni, en bakvið áróðurinn glittir mögulega í annars konar mann – mann sem fór sínar eigin leiðir og vildi taka Japan þangað líka.
Lagið með þættinum er sótt í kvikmyndina Kwaidan, en í henni kemur sagan um Hoichi hinn eyrnalausa og Antoku keisara fyrir.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


