Tæknivarpið – Nýr iPhone og fullskipað helluborð
Það er fullt að frétta þessa vikuna í tækniheimum. Apple lætur ekki deigan síga þó geisi heimsfaraldur og kynnti nýjan síma í vikunni: iPhone SE. Það mun vera fyrsti síminn frá Apple sem endurnýtir vörunafn (þetta er samt „iPhone 8s“). Einhver grúskari náði að grafa upp úr iOS14 betunni mynd af næsta iPhone sem virðist vera eitthvað breyttur og við köfum djúpt í næsta orðróma um næsta iPhone. Ming-Chi Kuo náði líka að finna einhverja brauðmola um nýja Homepod-hátalara sem er á leiðinni. Svo fjöllum við um nýjasta aðilann á nú þegar aðþrengdum streymisveitumarkaði: Quibi.
Stjórnendur í þætti 231 eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul og Gunnlaugur Reynir.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Heimildarinnar
- Eitt og annað: Comté eða ekki Comté27. september 2026
- Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #118. september 2026
- Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps?13. september 2026
- Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi19. júlí 2026
- Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina5. júlí 2026
- Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum21. júní 2026


