Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaðurinn hafi litið það svo jákvæðum augum að allt sem á undan var nefnt hafi verið léttvægt fundið af fjárfestum.
Fleiri þættir af Hlaðvarp Myntkaupa
- Sögulegt hrun á mörkuðum - Bitcoin undir 60k21. nóvember 2026
- Nvidia hneyksli steypir mörkuðum niður - hræðsla mælist á ný öfgakennd í crypto14. nóvember 2026
- Bandarísk hlutabréf og crypto taka væna dýfu - HYPE og fleiri myntir bætast við vöruúrval Myntkaupa!7. nóvember 2026
- Stærsta rán crypto sögunnar - Markaðir nötra af hræðslu31. október 2026
- Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k24. október 2026
- Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum17. október 2026
