Hlaupalíf Hlaðvarp

Vilhjálmur Þór og Elín Edda

Heilsa

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!

#78 POST Berlín!

Berlínarmaraþons uppgjör! Fórum yfir maraþondaginn, tvær gjörólíkar upplifanir af maraþoni og ýmsar skemmtilegar hliðar á því að fara í svona stórt maraþon. Nú er komið langþráð hvíldarseason og við hlökkum til að taka Hyrox föstum dögum á næsta season! Stay tuned! Þátturinn er í boði “Optical Studio” og “Hreysti”

#77 LOKSINS komin til Berlínar 🫡

KLÁR Í BERLÍNARMARAÞONIÐ! Tapering veikin tók yfir með hinum ýmsu draugaverkjum, veikindatilfinningu og andlegu ójafnvægi! Verkfalli flugvirkja aflýst og við komumst út, en lendingin var hörð og áfram smávægilegar uppákomur við komu til Berlínar, en þetta var allt saman bætt upp með vægast sagt sturluðu hóteli😲👑 Þátturinn er í boði Optical Studio og Hreysti!

#76 Á tæru fljótandi í maraþonblokk

Tapering tímabilið er formlega hafið! Því fylgir að sjálfsögðu óvæntar uppákomur eins og ristilspeglun, blöðrur á fótum og yfirvofandi verkfall flugvirkja😲 Fórum yfir lokametrana í preppi fyrir Berlín og ýmsar vangaveltur varðandi búnað, startholl og þar fram eftir götunum. Stay tuned! Þátturinn er í boði “Hreysti” og “Optical Studio”

#75 Mömmusigur í 1/2 MÞ og stutt í tapering, takk.

#75 þáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp kominn í loftið. Umfjöllunarefni: -Sigur EES í 1/2 MÞ í Rvk-maraþoninu - Staðan á road2Berlin -Næst síðasti langi túrinn sem við tókum saman LOKSINS - Krafturinn í hlaupunum fyrir okkur foreldrana -Lok afmælisvikunnar -UTMB shout out

#74 Totally eclipse of Hlaupalíf

Hlaupalíf keyrir af stað afmælisvikuna með brakandi ferskum þætti. Tökum stöðuna á road2Berlin, erum við að trust the process, vangaveltur um langatúrinn sem reynir vel á hausinn, vlog-ið hjá Andreu Kolb., sólmyrkrinn og margt margt fleira!

#73 Að loknu sumarfríi og fyrsti þriðjungur í MÞ prógramminu DÖNN 🫡😎

. Umfjöllunarefni: *Elin Edda að hamra Súlur *Berlín þokast nær og nær *Frammistöðukvíði *Næring í löngu túrunum *Sumafrí fjölskyldunnar ‘26 og lífið almennt

#72 Í endorfínvímu

Hlaupalíf heldur áfram umfjöllun um Road to Berlin’26. Erum að ljúka þriðju æfingavikunni í Run Less Run Faster prógramminu og förum yfir hvernig það hefur gengið. Eru æfingar á Air Runner too good to be true? Endorfínvíma eftir æfingar er aðeins of góð (og ávanabindandi). Fjölskyldulífið í fríi með þrjú börn. Bubbi, Eminem o.fl.ofl.

#71 Road 2 Berlín! 🫡

Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum að leyfa ykkur að fylgjast með næstu misserin. Stay tuned!

#70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏

Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! Fórum yfir íslensku tækninýjungina Tymewear og verður gaman að fylgjast með því hvort þetta verði næsta byltingin fyrir þolíþróttafólk. Svo var það nýr liður: Uppskriftahorn HH.  Þátturinn er í boði: Hreysti, Sportvörur og Optical Studio Minnum á afsláttarkóðann “Hlaupalif10” á bætiefnum og æfingateygjum hjá Hreysti.

#69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏

2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað. Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðri æfingaferð á Tenerife, og gerði upp hlaupaárið sitt og komandi markmið. Við verðum að viðurkenna að við værum ekkert á móti því að vera á Tene núna, enda sitjum við í Hlaupalíf með tebolla og ullarsokka að reyna halda okkur hita í þessum norðan garra! Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.

Þér gæti líka líkað...