Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

HeilsaMenntun

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum?  Kristján Þór Gunnarsson

Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum.  Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg samskipti, tilgangur og fleira séu allt jafn mikilvægir þættir til þess að upplifa heilbrigði.  Kristján Þór sem hefur sérhæft sig í offitu, næringu og lýðheilsu bendir einnig á mikilvægi þess að finna rót vandans í langvinnum krónískum sjúkdómum til þess að hægt sé að snúa við þróun þeirra.  Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱  -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.

Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk.  Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara og vara sem eru það ekki og áhrif þeirra á náttúruna og heilsuna. Bæði heilsu þeirra sem vinna með efnin og þeirra sem nota þau.   Kvennakvöld HeilsuErlu 10.október. Kvöld sem þú vilt ekki missa af! Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér! Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱  -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)

Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa Edda Björgvins- Húmor og heilsa Elísabet Reynis- Næring og heilsa Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa Kvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó) Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld. Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði. Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð, Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst. p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is *Matseðill. Þú getur valið um: 1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu. 2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk. 3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)

Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald? Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega sterkur líkami 💪🏻 sterkur hugur 🧠 sterk næring 🌱 sterk tengsl 🫶 = Sterk heild! Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt. Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni. Prentaðu út blaðið Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur) Merktu við daglega. Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir

Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur.  Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.  ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.  🌱  -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum!  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson

Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm. Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.  🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.

Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega. Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira.  Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar.  Einnig má finna verkefnið á Instagram Sérstakar þakkir til samstarfsaðilanna minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.  🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47)

Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta! Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju? Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir. Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í raun eru það litlu hlutirnir sem við gerum á hverjum degi sem hafa mest áhrif á hegðun okkar og líf. Venja er einfaldlega hegðun sem við endurtökum svo oft að hún verður næstum sjálfvirk. Og þess vegna geta venjur annaðhvort orðið okkar sterkasti bandamaður eða versti óvinur. Ég mæli með að lesa bókina Atomic Habits eftir James Clear. Hann bendir á að markmið segja okkur hvert við viljum fara, en það eru daglegu venjurnar sem ráða því hvort við komumst þangað. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

123. Ekki láta samviskubitið éta þig. (Uppeldi, mörk, samskipti, skjánotkun og hegðunarvandi). Jasmín Guðrún Abu Libdeh

Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall.  Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic.  🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur.  Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki. Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka. Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Þér gæti líka líkað...