#44 Búi Steinn Kárason
Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason. Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi, hvernig varð hann svona feyki góður hlaupari og hvað er á döfinni hjá honum? Við komumst að því í þessu viðtali ásamt fjölmörgu öðru enda áttum við virkilega gott og einlægt spjall við Búa sem enginn hlaupaunnandi má missa af.
Fleiri þættir af Hlaupalíf Hlaðvarp
- #78 POST Berlín!28. september 2026
- #77 LOKSINS komin til Berlínar 🫡26. september 2026
- #76 Á tæru fljótandi í maraþonblokk15. september 2026
- #75 Mömmusigur í 1/2 MÞ og stutt í tapering, takk.29. ágúst 2026
- #74 Totally eclipse of Hlaupalíf15. ágúst 2026
- #73 Að loknu sumarfríi og fyrsti þriðjungur í MÞ prógramminu DÖNN 🫡😎4. ágúst 2026



