Sinfónía nr. 1 – Halla Oddný ræðir við Högna Egilsson
Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins. Þessir spennandi tónleikar í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru helgaðir nýrri sinfónískri tónlist Högna og mun hann einnig koma fram sjálfur með hljómsveitinni í sumum verkanna. Hljómsveitin hefur áður flutt tónlist Högna, meðal annars tekið upp tónlistina fyrir Netflix-sjónvarpsþáttaröðina Kötlu og verða tvö sinfónísk ljóð úr Kötlu flutt á tónleikunum. Ennfremur verða frumflutt verk sem samin eru sérstaklega í tilefni tónleikanna, þar á meðal er fyrsta sinfónía Högna, hans stærsta hljómsveitarverk til þessa.
Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir hér við Högna um tónlist hans.
Úr hlaðvarpinu
Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar ÍslandsSinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra
Fleiri þættir af Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands
- Barbara Hannigan - aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands8. september 2026
- Hugi Guðmundsson - staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2026-2731. ágúst 2026
- Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur19. maí 2026
- Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime20. febrúar 2026
- Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan26. janúar 2026
- Mugison tekinn tali28. október 2025
