hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir
Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka.
Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala, en að mikilvægasta venjan hennar sem stjórnandi sé að hlusta.
Í dag tölum við um leiðina hennar, sem var hvorki bein né í réttri röð, um peninga og hvernig maður byggir upp heilbrigt samband við þá, og um hvernig kona leiðir með því að hlusta frekar en að taka mest pláss.
hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.
Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir
Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir
hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
Fleiri þættir af hún hlaðvarp
- hún hlaðvarp #24 Anna Steinsen17. nóvember 2026
- hún hlaðvarp #23 Hanna Birna Kristjánsdóttir10. nóvember 2026
- hún hlaðvarp #22 Erla Ósk Ásgeirsdóttir3. nóvember 2026
- hún hlaðvarp #21 Þórunn Inga Ingjaldsdóttir29. október 2026
- hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir22. október 2026
- hún hlaðvarp #19 Viktoría Hermannsdóttir14. október 2026
