Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

Gestur þáttarins er Anna Steinsen, leiðtogaþjálfari, fyrirlesari, einn stofnenda og eigenda KVAN og stjórnarformaður UN Women á Íslandi. Í dag ætlum við að tala um leiðtogann sem býr innra með okkur öllum. Um stelpuna sem roðnaði fyrir framan bekkinn og þjálfar í dag leiðtoga, um fyrstu skrefin sem stjórnandi og kröfuna um að hafa öll svörin, um samanburðinn, ofurhetjurnar og gömlu hlutina sem við drögum á eftir okkur, um börn sem fá að gera mistök og um það að halda mörgum boltum á lofti, og um það hvernig sjálfstraust er æft en ekki meðfætt. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Hanna Birna Kristjánsdóttir, meðstofnandi og stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga, ráðgjafi UN Women um forystu kvenna, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og innanríkisráðherra. Í dag ætlum við að tala um eina setningu, afhverju það er alltaf bara ein kona í einu. Um ellefu ár á bak við tjöldin í stjórnmálaflokki, um borg sem féll sex vikum eftir að hún tók við henni, um tónleikahús sem tveir andstæðir flokkar björguðu í janúar 2009, um rannsókn sem segir að þegar karl lendir í vandræðum missi hann traust en þegar kona lendir í vandræðum missi allar konur traust, um fimmtíu og tveggja ára konu sem flutti ein til New York, og um það hvernig maður býr til pláss fyrir fleiri en eina. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA, stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarkona í Bláa lóninu. Í dag ætlum við að tala um tengslanetið, bæði sem hnútinn og lausnina. Um formannsstóla sem konur hurfu úr og ráðningar sem fara fram í gegnum símtöl, um fyrsta stjórnarsætið og muninn á því að mæta á viðburð og að byggja raunverulegt samband, og um það hvernig konur lyfta hver annarri upp í stað þess að keppa um eitt sæti. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum, formaður stjórnar Votlendissjóðs og kennari í Executive MBA-námi Háskóla Íslands. Í dag ætlum við að tala um að skipta alveg um geira, ekki einu sinni heldur þrisvar. Um Nike, skipaflutninga og banka, um að leiða sérfræðinga þegar maður er sjálf nýja manneskjan, um móðurhlutverkið samhliða vaxandi ferli, um menntun sem breytir lífi kvenna, og um það hvernig tryggingar geta eflt konur. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur. Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir, um móðurhlutverkið samhliða stjórnendastöðu, um samning um eldhúsið, og um það hvernig maður stígur enn lengra inn í sviðsljósið þegar maður þarf þess ekki. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun. Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem fékk frí í skólanum til að fara í jarðarfarir með ömmu sinni og afa, um þrettán ára sölukonu sem var strax komin með sinn eigin kúnnahóp, um skólablað í Breiðholti sem seldi auglýsingar út um allt hverfið, um símtalið sem hún hringdi sjálf komin fimm mánuði á leið, um eitt útvarpsviðtal sem varð að verðlaunum, meistaragráðu og bíómynd, um draumaverkefni sem byrjar þegar hún er 39 ára og um það hvernig kona hættir að bíða eftir að vera uppgötvuð. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar. Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður frumkvöðull, í geira þar sem flestir láta sér nægja að vinna vinnuna sína. Um stærsta líffærið okkar, sem við tökum bara eftir þegar það er fallegt. Um biðlista sem varð að fyrirtæki, um doktorsritgerð sem var skrifuð með þrjú börn og lista af barnapíum, um sólarvörn í október og ljósabekki sem enginn hefur bannað, og um það hvernig kona lærir að segja hlutina upphátt. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka. Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 2017 sem sjálfboðaliði í gróðurhúsi í Hveragerði og fór heim með þá tilfinningu að hún ætti eitthvað óklárað hér. Ári síðar flutti hún, ein, lærði íslensku á fimm mánuðum, kláraði hugbúnaðarverkfræði í HÍ og stofnaði á meðan hún var enn í námi tvö fyrirtæki og vann Gulleggið með því þriðja. Hún var valin Rising Star of the Year á Nordic Women in Tech Awards 2023, situr í útflutnings- og markaðsráði Íslandsstofu og kynnti í vor gervigreindarlausn sem íslensk ráðuneyti, EFTA og ESA komu að og sem nágrannalöndin eru farin að spyrja um. Í dag ætlum við að tala um hvernig maður byggir sér líf og fyrirtæki í landi þar sem allir þekkja alla, nema þig. Um móður sem vann frá sex á morgnana til níu á kvöldin, um krydd sem varð að fyrirtæki, um forritara í Túnis og lögfræðinga í ráðuneytum, og um það hvernig traust er unnið. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds. Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem hefur breytt listinni sinni í rekstur. Fischersund byrjaði með einum ilmi í tómu, svörtu húsi í Grjótaþorpinu fyrir tæpum níu árum. Í dag eru ilmirnir seldir hjá yfir hundrað söluaðilum víða um heim, fjölskyldan hefur haldið ilmtónleika í París, Seattle og Kaupmannahöfn, og í fyrra var Fischersund valið verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Og samhliða öllu þessu heldur Lilja áfram að sýnasem myndlistarkona. Það sem mér finnst merkilegast við hana er ekki hvað húnhefur byggt, heldur hvernig. Engar auglýsingar, enginn fjárfestir, engin hefðbundin leið. Bara listafólk sem ákvað að vinna saman og treysta því að fólk fyndi þau. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka. Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala, en að mikilvægasta venjan hennar sem stjórnandi sé að hlusta. Í dag tölum við um leiðina hennar, sem var hvorki bein né í réttri röð, um peninga og hvernig maður byggir upp heilbrigt samband við þá, og um hvernig kona leiðir með því að hlusta frekar en að taka mest pláss. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó



