2. þáttur: Sprengjan

Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, Kalda stríðið og óánægðir módernistar.

Dagskrárgerð: Halla Harðardóttir

______________________________

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hver sprengdi hafmeyjuna?

Úr hlaðvarpinu

Hver sprengdi hafmeyjuna?

RÚV Hlaðvörp

Allir þættir

Fleiri þættir af Hver sprengdi hafmeyjuna?