Hver sprengdi hafmeyjuna?

RÚV Hlaðvörp

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum. Umsjón og dagskrárgerð: Halla Harðardóttir fyrir Rás 1 Aðrar þáttaraðir í þessu safnvarpi: Börnin á vistinni Bruninn í Skildi Sprengjan sem sprakk Elsta land í heimi Sölvadalur Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4. þáttur: Eyðilegging og furðusögur

Hvað segir sagan okkur um eyðileggingu listaverka og hvað liggur oftast að baki? Gætu valdamiklir menn úr þjóðfélaginu tengst sprengingunni? Við sögu koma Ólöf Pálsdóttir og Tove Ólafsson, biskupar, stórlaxar og stúdentar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. þáttur: Vanskaplingurinn í Tjörninni

Hvað gerðist eftir sprenginguna og hverjir tjáðu sig í ræðu og riti? Voru þetta strákapör eða þaulskipulagður verknaður? Hvað segja málfræðingur og listfræðingar um yfirlýsingu meints geranda og af hverju fjaraði rannsóknin út? Við sögu koma Jón Pétursson sem var fyrstur á vettvang glæpsins, Ásmundur Sveinsson og Ragnar í Smára. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

2. þáttur: Sprengjan

Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, Kalda stríðið og óánægðir módernistar. Dagskrárgerð: Halla Harðardóttir ______________________________ Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

1. þáttur Úr torfbæ til Hollywood

Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim? ______________ Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Börnin á vistinni 3. þáttur - „svona var þetta bara“

Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000. Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magnúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000. Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Börnin á vistinni 2. þáttur - gamli skólinn minn

Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð. Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini. Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Börnin á vistinni 1. Þáttur - skólahald til sveita

Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við hvernig skólahald til sveita þróaðist á 20. öldinni og heyrum bæði af heimþrá og hamingju á heimavist. Viðmælendur: Rúnar Sigþórsson, Jónína Einarsdóttir, Þura Jónasdóttir, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Líney Snjólaug Diðriksdóttir. Lesari: Ólöf Elsa Ásgrímsdóttir. Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bruninn í Skildi 3/3: Þögnin

Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum að fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt að bera kennsl á alla. Á sjúkrahúsi liggja 13 þungt haldin. Harmi lostnir kveðja íbúar Keflavíkurhrepps hið liðna ár og heilsa hinu komandi með sorg og kvíða. Umsjón: Dagný Maggýjar Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bruninn í Skildi 2/3: Eldur laus

Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til að skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu. Umsjón: Dagný Maggýjar Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bruninn í Skildi 1/3: Fyrirboðar

Það er 30. desember. Árið er 1935.  Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. Að samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins. Lítil hnáta skokkar við hlið bróður í nýrri kápu, systur með krullað hár leiðast og piltar í sparibuxum ærslast. Amma leiðir lítinn dreng sem er örlítið haltur.  Engan grunar hættuna framundan. Umsjón: Dagný Maggýjardóttir Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.