11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus
Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi.
Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra.
En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu.
Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi.
Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er einmitt hluti af töfrunum.
*****
Sírenan Parthenope úr Ódysseifskviðu Hómers
Grikkir - eyjan Ischia
Neapolis - Nýja borgin, Grikkir stofna á 6. - 5. old f.Krist
Palaepolis - gamla borgin
Spaccanapoli - "sú sem klýfur Napoli" - gata sem "sker" gömlu Napoli í tvennt.
326 f. Krist - Rómverjar koma
Virgil - höfundur Eneasarkviðu
Grikkir - Rómverjar - miðaldir - Spánverjar - konungar Búrbóna
11. og 12. old Normannar taka völdin á S-Ítalíu
1139 fer Napoli undir stjórn Normanna
1282 blóðug uppreisn á Sikiley - Sikileyski aftansöngurinn "I Vespri siciliani"
1503 ná Spánverjar yfirráðum
1647 uppreisn í Napoli - Masaniello fiskimaður
1734 ná Búrbónar völdum
Konungshöllin í Caserta
1737 Teatro di San Carlo opnað
1861 Giuseppe Garibaldi og konungsríkið Ítalía
19. og 20. old - milljónir manna yfirgefa S-Ítalíu
1943 - Heimstyrjöldin síðari og Le quattro giornate di Napoli, "hinir fjórir dagar Napoli" Almenningur tók upp vopn gegn Þjóðverjum
Camorra mafían
2006 bókin Gomorra eftir Roberto Saviano
Pizzo verndargjald
"Sono Napoletano"
Handahreyfingin "Ma che vuoi?" Hvað viltu eiginlega?
Totó (f. 1898)- einn ástsælasti gamanleikari Ítalíu
"Non hai mangiato niente" - Þú borðaðir ekki neitt
Hauskúpa í fóstur?
Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is
Facebook: https://www.facebook.com/Italiaheillar
Gmail: italiaheillar@gmail.com
Fleiri þættir af Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
- 13. Napólí - Góð ráð fyrir ferðalanginn22. október 2026
- 12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza14. október 2026
- 10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!9. september 2026
- 9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu2. september 2026
- 8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?26. ágúst 2026
- 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð19. ágúst 2026
