13. Napólí - Góð ráð fyrir ferðalanginn

· Útlönd

Í þriðja og síðasta þættinum um Napólí er komið að hagnýtu hliðinni. Hvernig er best að komast til borgarinnar, hvar er gott að gista, hvernig ferðast maður um – og er Napólí í raun eins hættuleg og orðsporið gefur stundum til kynna?
Við skoðum samgöngur, leigubíla, neðanjarðarlestir og Circumvesuviana-lestina og ræðum hvað ferðamenn þurfa helst að varast. Vespurnar koma þar óhjákvæmilega við sögu.
Síðan förum við í gönguferð um hjarta Napólí og heimsækjum meðal annars Spaccanapoli, Santa Chiara, Via dei Tribunali, spænska hverfið, Via Toledo og Piazza del Plebiscito áður en haldið er niður að Napólíflóanum. Einnig er komið við hjá Pulcinella, San Gennaro og auðvitað Maradona.
Við skoðum mögulegar dagsferðir til Pompeii, Herculaneum og Caserta og rifjum upp áhrifamikla sögu Napólí á Covid-tímanum, þegar panaro solidale – samstöðukarfan – varð tákn um náungakærleik.
Napólí er hávær, óreiðukennd og stundum þreytandi. En hún er líka heillandi, óvænt og ákaflega lifandi – borg sem á það til að stela hjarta ferðamannsins.

Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur
Vefsíða: www.italiaheillar.is
Facebook: https://www.facebook.com/Italiaheillar
Gmail: italiaheillar@gmail.com

Fleiri þættir af Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu