Undir Körfunni: Raggi Nat um öll félagaskiptin, bikarmeistaratitilinn og hlutverkið í landsliðinu „Dó næstum því í fyrsta landsleiknum“

· Íþróttir, Fréttir

Ragnar Ágúst Nathanaelsson, leikmaður Stjörnunnar, er gestur í 13. þætti af Undir Körfunni. Ragnar ræðir tíma sinn í atvinnumennskunni ásamt því að fara yfir öll félagaskipti sín á Íslandi.
Ragnar vann nýlega sinn fyrsta stóra bikar á ferlinum þegar Stjarnan varð bikarmeistari í mars. Ragnar gefur upp hvers vegna Stjarnan er svo gott bikarlið að hans mati en Stjarnan hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari síðustu 10 árin.
Í hvert skipti þegar landsliðshópur Íslands er tilkynntur þá fer af stað sú umræða hvort Ragnar eigi að vera í hópnum. Ragnar svarar öllum þeim gagnrýnisröddum og útskýrir nánar hvert hlutverk hans er í landsliði Íslands.
Að sjálfsögðu eru einnig fastir liðir eins og venjulega, stemningin í klefanum, spurningar af Subway spjallinu, draumalið samherja Ragnars og úrvalslið hans í Subway-deild karla.
Umsjón: Atli Arason
Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan