Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg. Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í Bónusdeild karla og leikinn um Meistara meistaranna. Þá er rýnt í félagaskiptagluggann og hvaða hreyfingar komu mest á óvart fyrir veturinn. Einnig er tekinn léttur topp fimm listi yfir þau lið í gegnum tíðina sem reyndu að kaupa titilinn án árangurs, ásamt ýmsu öðru sem bar á góma í lengri kantinum. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur og fer körfuboltaveturinn af stað af fullum þunga. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni voru þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó sem fóru yfir allt það helsta. Farið var yfir fréttir vikunnar og boltann sem er þegar byrjaður að rúlla í Bónusdeild kvenna, þar sem sérstaklega var rýnt í sigurleik KR gegn Stjörnunni. Þá beindust sjónirnar að Meistarakeppni KKÍ um helgina þar sem Grindavík og KR mætast í Meistara meistaranna í karlaflokki, auk þess sem hitað var rækilega upp fyrir fyrstu umferð Bónusdeildar karla sem fer af stað í næstu viku. Til að toppa umræðuna stilltu félagarnir upp yfirliti yfir þá þjálfara og leikmenn sem bera hvað þyngstu pressuna á sínum herðum fyrir komandi leiktíð. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó, sem mættu vel gíraðir til að greina stöðuna fyrir komandi átök í Bónusdeild karla. Í þættinum er tekin söguleg yfirferð á gengi nýliða í efstu deild allt aftur til ársins 1996 og rýnt í hvernig nýliðum gengur almennt að fóta sig meðal þeirra bestu. Þá er farið ofan í saumana á lagaskiptingu deildarinnar fyrir komandi tímabil: Hvaða lið geta raunverulega orðið meistarar, hver geta blandað sér í þann hóp, hvaða lið sigla lygna sjó án mikillar hættu á falli en eiga lítið erindi í toppbaráttuna, og hvaða lið eru dæmd í harða fallbaráttu í vetur? Undir lokin er svo tekin skemmtileg vending út fyrir völlinn þar sem félagarnir stilltu upp fimm bestu Keflvíkingum allra tíma – fyrir utan körfuboltann. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur í loftinu þar sem farið er yfir allt það heitasta í íslenska körfuboltanum. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Heisi Högg og JónFrí. Spennan fyrir komandi tímabili í Bónusdeild karla heldur áfram að magnast og í þættinum birtir þríeykið uppfærða spá fyrir veturinn í ljósi nýjustu vendinga. Þá er rýnt í félagaskiptamarkaðinn og teknir fyrir fimm leikmenn sem þeir væru til í að sjá, og telja alls ekki ólíklegt, að færi sig um set á komandi leiktíð. Til að toppa umræðuna er svo tekin nostalgísk og skemmtileg yfirferð yfir sögu helstu spútnikliða í efstu deild karla síðustu 30 árin – liðanna sem komu öllum að óvörum, sprengdu allar spár og settu deildina á hliðina. Að sjálfsögðu er einnig farið yfir helstu fréttir vikunnar auk þess sem skór vikunnar eru á sínum stað í boði Wodbúðar. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Helgi and David are back after the summer (and a missed end-of-season podcast) in a new studio, Rabbrýmið. First, congratulations to Grindavík men's and Njarðvík women's for winning the championships last season. Then we touch on the two NT men's games that were just played. We do our power rankings for the top divisions, we sometimes agree (sometimes not) and the median is found through mathematics (after the recording). Big moves are discussed and we're just glad to be back! Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir sviðið í íslenska boltanum. Í þetta skiptið mættu þeir Heisi Högg og Mummi Jones sem gestir þáttarins og fór þríeykið yfir víðan völl fyrir komandi átök í Bónusdeild karla. Í þættinum er litið um öxl og stærstu móment síðasta tímabils gerð upp, áður en sjónum er beint að komandi leiktíð: Hvar er mesta pressan fyrir veturinn, hvaða félög/leikmenn/þjálfarar finna mest fyrir hitanum og hverjir mega alls ekki misstíga sig? Aðalumræðuefni þáttarins er hins vegar ítarleg yfirferð á „þaki og gólfi“ hvers einasta liðs í Bónusdeildinni. Rýnt er í hvaða væntingar áhangendur geta raunhæft gert til sinna manna – hversu hátt getur liðið flogið ef allar stjörnur stillast upp og allt gengur upp, og hversu djúpt getur það sokkið ef allt fer á versta veg og lukkan snýr baki við hópnum? Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og Tyrklandi. Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla. Rýnt í hvaða lið standa frammi fyrir erfiðustu byrjuninni í fyrstu umferðunum og tekin góð umræða um efnilega, unga leikmenn sem búast má við að fái tækifæri á gólfinu í vetur. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM, en fram undan eru gríðarlega sterkir andstæðingar þar sem liðið mætir Serbíu í Belgrad á föstudag og tekur svo á móti Tyrklandi á mánudag, auk þess sem stuttlega er litið yfir nýafstaðinn æfingaleik gegn Finnlandi. Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla þar sem birt er uppfærð spá fyrir komandi leiktíð. Litlar breytingar eru á toppnum en miklar sveiflur og vendingar eiga sér stað um miðja deildina. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Eftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en það er af nógu að taka eftir mánuð í dvala. Strákarnir hita rækilega upp fyrir tímabilið 2026-27 og kafa djúpt í leikmannamarkaðinn þar sem rýnt er í hverjir eru komnir, hverjir eru farnir og hvernig styrkleikahlutföllin á milli liðanna hafa breyst. Stærsti hlutinn er þó tileinkaður veglegri og snemmbúinni spá fyrir Bónusdeild karla þar sem farið er yfir hvert einasta lið og möguleika þeirra á komandi vetri. Það er óhætt að segja að spáin sé djörf og muni vafalaust kveikja hressilegar umræður á kaffistofunum á næstunni. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu snilld. Farið er yfir helstu hápunkta og dramatíkina sem einkenndi veturinn, auk þess sem strákarnir veita sín eigin verðlaun fyrir tímabilið og rýna í það sem stóð upp úr hjá liðunum. Auk þess að horfa til baka hleypa þeir hlustendum í ferðalag fram í tímann og spá í spilin fyrir næsta vetur. Mikil eftirvænting ríkir fyrir sumrinu og ræða þeir ítarlega hvernig leikmannamarkaðurinn muni þróast á næstu mánuðum, hvaða hræringar séu líklegar og hvaða lið gætu styrkt sig mest fyrir komandi átök. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna


