Ársins 2021 - Undir Körfunni - Embla um erfið meiðsli sín, dólgslegan leikstíl, barneigna tilkynningar og erjur við þjálfara á ferlinum „Ég setti fótinn niður og sagði hingað og ekki lengra“
Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, er viðmælandi í fimmta þætti Undir Körfunni. Embla ræðir um feril sinn hingað til, helstu ástæður vegna félagaskipta og tilveruna í Borgarnesi.
Embla tilkynnti á dögunum að hún ætti von á sínu öðru barni og mun ekki spila meira á tímabilinu með Skallagrím. Embla svarar slúðursögum sem hafa gengið á varðandi tilkynningar hennar til félagsins og Embla ræðir einnig ítarlega um Goran Miljevic, fyrrum þjálfara Skallagríms, en hún viðurkennir að hafa átt stóran þátt í brottrekstri hans frá félaginu.
Ásamt því er rætt um fasta liði eins og venjulega, stemninguna í klefanum, bestu og verstu augnablikin á ferlinum og svo tilkynnir Embla úrvalsliðið sitt af samherjum yfir ferilinn og draumalið sitt í Subway deildinni.
Umsjón: Atli Arason
Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






