Undir Körfunni – 2/2 – Þröstur um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík, um gælunafnið Sölli Tattoo Passport Smoker og mikilvægi hans í liði Keflavíkur, „Kæruleysið er mér svo kært“
Þröstur um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík, um gælunafnið Sölli Tattoo Passport Smoker og mikilvægi hans í liði Keflavíkur, „Kæruleysið er mér svo kært“
Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, er gestur í áttunda þætti af Undir Körfunni. Áttundi þætti er skipt upp í tvo hluta og í seinni hluta ræðir Þröstur meira um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík sem er innbyggður í alla íbúa í Reykjanesbæjar, Þröstur er blár í gegn og getur því aldrei valið neitt sem er grænt á litinn.
Farið er yfir ákveðna leiki á tímabilinu sem er að líða og sérstaklega innkomu hans í sigurleiknum gegn Val sem vannst með einu stigi á loka sekúndu leiksins. Þröstur ræðir meiðsli David Okeke í leiknum gegn Tindastól og hlutverk Þrastar í liði Keflavíkur.
Þröstur svarar spurningum af Subway-spjallinu, sætustu sigrar hans á ferlinum og stemninguna í klefanum í Keflavík.
Umsjón: Atli Arason
Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






