Fókus: Hvaða lið urðu betri í sumar í úrvalsdeild kvenna?
Fókus kom saman og fór yfir allt sem hefur gerst á leikmannamarkaði sumarsins í úrvalsdeild kvenna. Taldar eru upp allar breytingar hópa liðanna og reynt að rýna í hvort að liðið hafi orðið betra eða verra yfir sumarið. Þá er einnig farið yfir undanúrslit og úrslit VÍS bikarkeppninnar sem klárast nú í vikunni.
Fókus er nýtt podkast sem að fullu verður helgað umfjöllun um kvennakörfubolta, úrvalsdeild, fyrstu deild og um þá leikmenn sem leika austan og vestanhafs. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í þessum fyrsta þætti er ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur Baldursson.
Fókus er í boði Kristalls, sem er það eina sem gestir drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. Þá er Lykill fjármögnun einnig aðalstyrktaraðili.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






