Aukasendingin: Máté og Ísak fara yfir felldar tillögur um þjóðernisdeild / kynjablöndun og hvað sé að gerast í Dominos deildunum
Aukasendingin kom saman og fór yfir tillögur á ársþingi KKÍ er snéru að verulegum takmörkunum á erlendum leikmönnum í efstu deildum og blöndun kynja á yngri flokka mótum.
Gestir þáttarins eru þjálfarar tveggja toppliða í fyrstu deildinni, Mate Dalmay, þjálfari Hamars í fyrstu deild karla og Ísak Máni Wíum, þjálfari ÍR í fyrstu deild kvenna.
Þá er einnig farið vel yfir helstu hræringar í Dominos deildum karla og kvenna. Gerir Sara Rún Hauka að meistaraefnum? Getur Njarðvík fallið? Er í lagi að lið bæti við leikmönnum um miðjan mars? Hvaða þrjú lið eru líklegust til að vinna? …og margt fleira
Aukasendingin er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. Þá er Lykill fjármögnun einnig aðalstyrktaraðili.
Umsjón: Davíð Eldur
Gestir: Ísak Wíum og Máté Dalmay
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






