BLE: Meira drama í Vesturbænum, grænu liðin slök og auðvitað er Lebron James bestur
Véfréttin henti í tvískiptan þátt af Boltinn Lýgur Ekki í vikunni.
Í Fyrri hlutanum mætir Steinar Aronsson og fjallaði ásamt Véfréttinni um Dominosdeildina, nýtt og meira drama í Vesturbænum, luralega Tindastóla og áhyggjur af grænu liðunum. Spáðum líka í spilin fyrir fyrstu umferð deildarinnar.
Í Síðari hlutanum fékk Véfréttin Hörð Unnsteinsson til þess að fara yfir sviðið í NBA deildinni. Bæði í seríunum sem eru að klárast, möguleg úrslit og þvíumlíkt.
En einnig stóru myndina hvað varðar legasíið hjá Kawhi Leonard, hversu góður 2nd banana Anthony Davis sé, hvernig Boston ætli að bæta liðið sitt og Hvað menn í Houston ætla að gera eftir Mike D'Antoni.
Þá tækluðu þeir verðlaunaafhendingar ársins sem og skoðuðu fréttir liðinnar viku.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






