Boltinn Lýgur Ekki: Jón Axel, Martin og Haukur allir í nýjum liðum - Hver eru 8 verstu liðin sem komist hafa í úrslit?
NBA deildin fer aftur af stað þann 30. næstkomandi. 22 lið eru saman komin í Disneylandi í einskonar bólu, sem sett var saman með ströngum öryggisreglum til varna Covid-19.
Boltinn Lýgur Ekki fer yfir hverju megi búast við af endursetningu NBA deildarinnar og hvaða lið eru talin eiga eftir að koma best útúr þessari löngu pásu. Þá eru vistaskipti Martins til Valencia, Hauks Helga til Andorra og Jóns Axels til Frankfurt rædd.
Einnig er farið yfir hver eru 8 verstu lið sögunnar til þess að komast í lokaúrslit, sem og eru 2005-06 og 2013-14 tímabilin rædd í þaula.
Litríkur leikmaður þáttarins er fyrrum leikmaður Houston Rockets, New York Knicks og Orlando Magic, Steve Francis.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






