(Endurútgefið - Apríl 2020) Boltinn Lýgur Ekki: Haukur Helgi í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Þú tekur þínar eigin ákvarðanir”

· Íþróttir, Fréttir

Haukur Helgi Pálson Briem, leikmaður íslenska landsliðsins og Unics Kazan, var gestur í upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Haukur var spurður út í þau kynslóðaskipti sem hafa verið að eiga sér stað í landsliðinu og hvernig honum lítist á framtíð liðsins.

Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall í dag, þá hefur Haukur spilað meira en minna fyrir utan landsteina Íslands síðustu 12 ár. Haukur fer í þættinum í gegnum þennan fjölbreytta feril og segir sögur frá hverjum einasta stað sem hann var á, en meðal annarra liða sem Haukur hefur verið á mála hjá er Montverde akademían og Maryland háskólinn í Bandaríkjunum, nokkur lið í ACB á Spáni, deildir í Svíþjóð, Frakklandi og Rússlandi, sem og að sjálfsögðu árið sem hann tók með Njarðvík í Dominos deildinni.

Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.

Gestur: Haukur Helgi Pálsson Briem

Umsjón: Davíð Eldur og Sigurður Orri

Dagskrá

00:00 - Létt Hjal
04:00 - Upphafið og Fjölnir
12:00 - Montverde og Maryland
24:00 - Sögur úr mennskunni - ACB, Þýskaland og Svíþjóð
41:00 - Árið með Njarðvík
48:00 - Þrjú ár í Frakklandi
55:00 - Barist við birni í vestur Rússlandi og boð í Summer League
01:17:00 - Líf atvinnumannsins
01:29:00 - Vonlaus áhrifavaldur
01:31:00 - Besta lið sem Haukur hefur spilað með
01:37:00 - Þróun landsliðsins síðustu ár og framtíðin
01:53:00 - Hvert er Haukur að fara?
01:58:00 - Lögreglumaðurinn Haukur Helgi
02:02:00 - Hvern er erfiðast að dekka?
02:05:00 - Draumalið samherja
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan