Podcast Körfunnar: Stefán Karel í spjalli - Fjórir heilahristingar á fjórum árum bundu enda á ferilinn

· Íþróttir, Fréttir

Podcast Körfunnar fékk í heimsókn Stefán Karel Torfason. Í þættinum er rætt um íþróttauppeldið, Þór, frábært umhverfi hjá Snæfelli, KR og eina leikinn með ÍR.

Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára gamall í dag, þurfti Stefán að hætta í körfubolta fyrir fjórum árum vegna tíðra höfuðhögga. Síðan þá hefur hann helgað sig aflraunum.

Þrátt fyrir að hafa verið ungur að árum þegar hann lagði körfuboltaskóna á hilluna, hafði Stefán heldur betur látið að sér kveða í efstu deild á Íslandi, en á síðasta heila tímabilinu sem hann lék, 2015-16 með Snæfell, skilaði hann 11 stigum og 10 fráköstum að meðaltali í leik 21. árs gamall.

Podcast Körfunnar er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan