(Endurútgefið - Mars 2020) BLE: Verðlaunaafhending fyrir tímabilið 2019-20 í Dominos deild karla og NBA

· Íþróttir, Fréttir

Í mars komu þær fréttir að Dominos og fyrstu deildum á Íslandi hafi verið aflýst. Þá hafði leik verið frestað í NBA deildinni í Bandaríkjunum og verður það að teljast ólíklegt að hún haldi áfram næstu mánuðina.

Boltinn Lýgur Ekki fór vel yfir stöðu beggja deildar í þessari upptöku. Þá gera þeir einnig ráð fyrir að öllum tímabilum sé lokið og fara því í alsherjar verðlaunaafhendingar fyrir bæði Dominos deild karla og NBA deildina. Þar eru valin þrjú úrvalslið fyrir hvora deild, verðmætasti leikmaður, besti varnarmaður, sjötti maður, þjálfari ársins, mestu framfarir og margt fleira. Þá eru einnig mikið af sprelliflokkum. Hver er líklegastur til að kveikja sér í sígó eftir leik, versta hárið, besta skeggið og margt fleira skemmtilegt.

Litríkur leikmaður þáttarins er sigursælasti leikmaður og þjálfari efstu deildar, Sigurður Ingimundarson, en honum fylgir tónlist frá heimaslóðum hans í Keflavík af nýútkominni plötu tónlistarmannsins Kilo, sem ber nafnið Heart of Gold.

Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.

Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni eru Véfréttin, Sá Raunverulegi og Sá Eldfimi.

Dagskrá
00:30 - Ákvörðun dagsins: Öllu aflýst
14:00 - Dominos deild karla: Verðlaunaafhending
54:00 - NBA deildin: Verðlaunaafhending
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan