(Endurútgefið - Júlí 2019) Off-season: Siggi Hjörleifs "Við eigum ekki að vera brjóta reglur"

· Íþróttir, Fréttir

Nú fyrst að körfuboltatímabilið er í pásu ætlum við hjá Körfunni að taka fyrir nokkra stólpa innan körfuboltahreyfingarinnar. Þessir aðilar munu koma úr öllum áttum; þetta verða leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn, sjálfboðaliðar og fleiri sem munu ræða hvernig þeir koma að og þrífast í þessari móður allra íþrótta.
Viðmælandi dagsins er Sigurðu Hjörleifsson, yfirleitt kallaður Siggi Hjörleifs. Siggi hefur verið í kringum körfuna á Íslandi í fjöldamörg ár og hefur marga fjöruna sopið. Hann ræðir synina sína, Matthías Orra og Jakob, hans eigin leikmanna- og þjálfaraferil og minnist líka á Íslandsmet sem að hann á utan körfuboltans. 
Siggi hefur á seinni hluta ferilsins síns einbeitt sér að því að vera umboðsmaður fyrir erlenda körfuboltaleikmenn. Hann hefur komið með helling af stórum nöfnum til landsins og þar má nefna menn eins og Brenton Birmingham, Darrell Lewis og Justin Shouse. Hann þjálfaði '82 landsliðið fræga, gerði kvennalið Breiðabliks að Íslandsmeisturum fyrir aldamótin og hefur byggt upp körfubolta á fjölmörgum stöðum á Íslandi. 
Undir lokin förum við um víðan völl og tölum m.a. um hvernig körfuboltinn hér á landi er einmitt núna og hvert hann stefnir. Njótið vel!
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan