Boltinn Lýgur Ekki: Í skugga Rónunnar - Verðlaunaafhendingar fyrir Dominos deild karla og NBA deildina
Fyrr í dag komu þær fréttir að Dominos og fyrstu deildum á Íslandi hafi verið frestað. Þá hafði leik verið frestað í NBA deildinni í Bandaríkjunum fyrir síðustu helgi og verður það að teljast ólíklegt að hún haldi áfram næstu mánuðina. Heilt yfir mjög erfiðar, en á sama tíma skiljanlegar fréttir fyrir körfuknattleiksheiminn.
Boltinn Lýgur Ekki fara vel yfir stöðu beggja deildar í þessari síðustu upptöku. Þá gera þeir einnig ráð fyrir að öllum tímabilum sé lokið og fara því í alsherjar verðlaunaafhendingar fyrir bæði Dominos deild karla og NBA deildina. Þar eru valin þrjú úrvalslið fyrir hvora deild, verðmætasti leikmaður, besti varnarmaður, sjötti maður, þjálfari ársins, mestu framfarir og margt fleira. Þá eru einnig mikið af sprelliflokkum. Hver er líklegastur til að kveikja sér í sígó eftir leik, versta hárið, besta skeggið og margt fleira skemmtilegt.
Litríkur leikmaður þáttarins er sigursælasti leikmaður og þjálfari efstu deildar, Sigurður Ingimundarson, en honum fylgir tónlist frá heimaslóðum hans í Keflavík af nýútkominni plötu tónlistarmannsins Kilo, sem ber nafnið Heart of Gold.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni eru Véfréttin, Sá Raunverulegi og Sá Eldfimi.
Dagskrá
00:30 - Ákvörðun dagsins: Öllu aflýst
14:00 - Dominos deild karla: Verðlaunaafhending
54:00 - NBA deildin: Verðlaunaafhending
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






