Boltinn Lýgur Ekki After Dark: 4+1 All Stars, Þór fallnir, Keflavík er besta liðið og af hverju hata lýsendur NBA deildarinnar deildina sína?
Véfréttin skellti sér í miðbæinn til þar sem Sá Raunverulegi er til húsa og tóku þeir félagarnir stöðuna.
Litríkur leikmaður vikunnar er Shawn Kemp og venju samkvæmt fylgja tónar frá heimaslóðum hans í Indiana fylki Bandaríkjanna.
Strákarnir tóku fyrir hin ýmsu málefni.
Hvaða leikmenn voru flottir í 4+1 kerfinu en minna flottir í dag? Ofmetnir Njarðvíkingar, pabbastrákar á Sauðárkróki, 1. deild karla, yfirlýsingar Brynjars um smitsjúkdóma, óverðskuldaður úrvalsdeildarbolti að Hlíðarenda á næstu leiktíð og margt, margt fleira.
Í NBA hlutanum voru Clippers skoðaðir, hvort að Harden þurfi háloftamiðherja, hvers vegna gamlir leikmenn sem núna eru lýsendur hata deildina sína og þá tók Tómas sig til og spáði fyrir um alla úrslitakeppnina eins og hún lítur út í dag.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Dagskrá:
00:00:00 - Létt hjal
00:01:50 - Litríkur leikmaður vikunnar er Shawn Kemp
00:07:00 - Dominosdeildin
00:46:45 - Brynjar og veiran
00:50:35 - 4+1 All Stars
01:04:25 - 1. deildin
01:13:00 - NBA
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






